Honky Tonk folks

Þá er Stefanía að fá alla sína drauma uppfyllta, við erum búin að kaupa miða á Gran Ole Opry á kántrýtónleika sem hefjast kl 19 að staðartíma.  Þar eigum við von á að heyra í a.m.k. þremur heimsfrægum böndum sem ég hef aldrei heyrt á minnst enda veit ég ekkert um kántrýtónlist nema að hún er yfirleitt um fólk sem á ægilega bágt af því að það hitti ekki elskuna/elskann sinn....

Hitinn er nokkuð öflugur núna þessa stundina - losar 33 gráður sýnist mér þegar ég er búinn að reikna F°yfir í íslenskar!!! það breytir ekki því að við ætlum að skipta um galla og skella okkur niður á Honky Tonk hverfið og hita upp fyrir kvöldið.  Tinna dóttir mín hefur krafist þess að fá eitthvað kántrý-dót við hugsanlega heimferð foreldra sinna og ég mun því skoða sérstaklega í búðir og leita að kabbójum sem hljóta að vera hér á lausu.  Andri sonur missti af því að heimsækja Gibson búðina hér í Nasville (ég bauð honum með hingað út en hann hafði ekki lyst á að fara til  Ameríku!!!) en hér er mynd af gítarnum sem hann hefði örugglega keypti ef hann hefði verið hér...CIMG0606

CIMG0599 

Stefanía við Grand Ole Opry


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Eiríkur Hreinn Helgason

Höfundur

Eiríkur Hreinn Helgason
Eiríkur Hreinn Helgason

Yfirlögregluþjónn í Lögregluskóla ríkisins, söngvari par exilence, mótorhjólaáhugamaður, heimilisfaðir, kvæntur Stefaníu Valgeirsdóttur.  Börn: Kristinn (fóstursonur), Tinna (einkadóttir) og Andri (molinn).  Engin gæludýr um þessar mundir en stendur kannski til bóta.  Ekki pólitískur, leiðist reyndar pólitík og enn meira pólitískar stöðuveitingar.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • CIMG1098
  • CIMG1109
  • CIMG1056
  • CIMG1043
  • CIMG1034

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 756

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband